Big bag of money

Lottóvinningar eru víst skattfrjálsir, og einhver í Fellunum vann 65 milljónir. Til hamingju með það hver sem þú ert, en sökum ákveðins skapgerðarbrests er ekki sjens að ég samgleðjist þér.

Talib Kweli

Þetta vekur hjá mér mikla vanmáttarkennd…if you know what I mean :)

NYC

Gleðifréttir. Ég er að fara í stutta ferð til New York í Nóvember. Verð á flottu hóteli með útsýni yfir Empire State, Chrysler bygginguna, East River og eitthvað fleira. Vá hvað ég er sáttur við að komast loksins til NY. Sérstaklega þar sem ég fæ sweet deal á þessu…frekar sweet deal.

Það leiðinlega er að ég verða sennilega að jafna mig á hnéaðgerð í leiðinni. Ég vona að ef til aðgerðar komi þá verði það gert nógu snemma í haust til að ég geti verið kominn á ágætis ról í byrjun Nóv en læknirinn sagði að ég verði frá í 2-3 mánuði. Skita. En gleymum því í bili.

Svo verð ég að óska Símoni og Vaníu innilega til hamingju. Miðjubróðirinn orðinn pabbi bara. Shiiit. Ég á bara ekki orð.

Skita

Þessi mynd lýsir nokkuð vel hvernig mönnum hlýtur að hafa liðið eftir leikinn gegn KS/Leiftri. Maður er bara stoltari en svo að maður gangi hnakkreistur af velli eftir svona hörmungarúrslit. En nú er að sýna karakterinn. Þessi endemis skita er gengin nógu langt. Nú þurfum við ný meðöl. Að reyna það sama aftur og aftur og búast við nýjum niðurstöðum er geðveila. Við köfum bara ofaní sjálfa okkur og finnum eitthvað nýtt til að nota. (Góðar klisjur maður). En þetta gengur ekki lengur. Við verðum að girða í brók. Ég var í stúkunni sem fyrr og sjúkraþjálfarinn segir að ég geti farið með til Eyja á laugardaginn og spilað eitthvað. Ég vona bara að ég geti spilað meira en mér heyrðist á honum að ég gæti. Kemur í ljós.

KR-FH

Ég fór á KR-FH í gær í blíðunni. Þetta var hinn ágætasti leikur. Ég kom þegar korter var liðið af leiknum og skildist á mönnum að KR-ingar hefðu byrjað leikinn betur. En frá því ég kom komust FH-ingar yfir með víti og voru mun sterkari heldur en KR-ingar. Gaman að sjá brilliant assist frá Höska Eiríks sem Matti kláraði vel. Atli Guðna átti að setja þriðja markið fyrir þá en var endemis klaufi að setja hann ekki. Persónulega fannst mér FH-ingar heilt yfir leiðinlega sterkari en KR-ingar og ég var að vonast til að sjá jafntefli í þessum leik sem var þannig séð aldrei að fara að gerast. Bjarni fékk rautt og mér fannst það nett strangur dómur en svona þegar ég spái í það þá var þetta náttúrulega glórulaust brot algjörlega. NFL fnykur af þessu bara.

Svo á morgun er leikur í víkinni. Víkingur-KS/Leiftur. Skylda fyrir Víkinga að rífa sig upp eftir smánarlegt tap gegn Njarðvík og sýna hvað í okkur býr. Ég ku ekki vera klár í þennan endemis leik vegna fokking meiðsla en ég er á ágætis batavegi og ætti að ná leiknum við ÍBV ef allt gengur vel. Vá hvað ég er búinn að fá nóg af því að horfa á fótbolta úr stúkunni maður. Þetta gerir voðalega lítið fyrir mig.

Annars, R.I.P. Isaac Hayes. Enn einn snillingurinn kveður.

RIP

RIP Bernie Mac

Víkingar og Valsmenn

Gærdagurinn var nett áhugaverður fyrir strákinn. Víkingar og Valsmenn voru að spila á sama tíma og kom það 50% vel út. Ég fór í Njarðvík að horfa á liðið mitt spila við heimamenn og herre Gud i himmelen! Njarðvík hafði sigur 1-0. Milos klikkaði á þvílíku dauðafæri og Þobbi fannst mér fá einhver færi sem hann hefði átt að nýta betur. En leikur liðsins var ekki nógu heilsteyptur. Menn voru að sjálfsögðu að hlaupa og leggja sig fram en í einstaka leikstöðu vantaði klókindi. Einum og einum leikmanni vantaði svo form til að klára sín hlaup. En menn sýndu svo keppnisskap og það var svolítið um kýtingar. Abbi hjá Njarðvík átti að fá rautt fyrir brotið á Runa. Þetta var bara hefnibrot og ekkert annað.

Valsleikurinn var betri leikur áhorfs. Það var meira um opin færi og Valsmenn höfðu á endanum 2-0 sigur. Ánægjulegt. Nú eru Valsmenn aðeins fimm stigum frá efsta sætinu og það er ekki blautur skítur. Þessir menn hreinlega kunna að vinna mót. Ég ætla að leyfa mér að spá því að Valsmenn hampi titlinum. En ég er að sjálfsögðu fáránlega hlutlaus. Gaman að sjá G.Ben og Alla litla skora í sama leiknum. Helgi Sig veit ég að samgleðst öllum sem skora á fullu. Ég veit að ég myndi gera það.

En að lokum vil ég benda mönnum á myndina Love Guru með Mike Meyers. Þetta er ekki “góð” mynd skv. einhverjum listastaðli en ég hló endalaust að vitleysunni í Mike sjálfum, eða “Guru Pitka”. Aulahúmor út í eitt.

“Be Loving & Openhearted With My Emotions! TM” “If your uncle jack helped you off an elephant…”

Slater

Jájá…ég er búinn að ákveða þetta. Þann 24.ágúst set ég lögin mín hér inn í tilefni af afmælinu mínu. Þannig að það verður hægt að nálgast plötuna alla hér. Meira um það síðar samt. Það verður eitthvað skemmtilegt fyrirkomulag á þessu sem ég á eftir að útfæra en lögin eru klár og verða hérna inni. Kannski það komi eitt og eitt lag hér inn á meðan við bíðum svona til að gefa ákveðinn forsmekk að þessu.

Vinnuheitið á plötunni hefur verið “Slater” hingað til og það er spurning hvaða titil hún mun bera að lokum. Það er líka spurning með ákveðinn mann sem ætlaði að blessa eitt og eitt lag með ákveðnum göldrum en óvíst er hvort náist. En allt kemur þetta í ljós in due time.

Slater.

Russian Boyband

Ætli ég láti ekki hitt myndbandið sem var kynnt fyrir mér flakka bara líka. Þetta finnst mér tóm snilld. Rússneska útgáfan af Backstreet Boys…gjöriði svo vel.

Ég get ekki annað en dáðst að peysunum þeirra. Skelli mér í Dressman á eftir!

Andgift engin

Sorrí. Fer að pikka þetta upp á næstu dögum. Mikið að gera. :-) Vona að þetta gleðji ykkur á meðan. Góð kveðja á “Hraunið”.

Hrikalega er gæjinn hennar úber svalur maður.

“I dont wanna lose you tonight!”